14.02.1983
Neðri deild: 38. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1909 í B-deild Alþingistíðinda. (1642)
80. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Frv. þetta, sem komið er frá hv. Ed., gerir ráð fyrir að heimilt verði að fella niður útflutningsgjald af kolmunnaafurðum. Kolmunnaveiðar eru stundaðar nú í tilraunaskyni, getum við sagt, og er það gert með verulegri fjárhagsaðstoð bæði frá Fiskimálasjóði og frá sjútvrn. Í lögum þessum er gert ráð fyrir að heimildin, eins og Ed. hefur breytt frv., gildi fyrir árin 1982, 1983 og 1984.
Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um málið, menn þekkja vel þessa tilraun með kolmunnaveiðar, en legg til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.