14.02.1983
Neðri deild: 38. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1943 í B-deild Alþingistíðinda. (1692)

85. mál, efnahagsaðgerðir

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Með samþykkt till. frá hv. þm. Matthíasi Bjarnasyni og fleiri var ákveðið að taka ekki gengismun af skreiðarútflutningi. Það skerðir tekjur gengissjóðs um u. þ. b. 90 millj. kr. Ef þessi till. er samþykkt er jafnframt gert ráð fyrir að greiða skreiðarútflytjendum styrk af fé sem er ekki til. Ég segi því nei.