13.10.1982
Sameinað þing: 2. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (17)

Embættisfærsla sýslumanns á Höfn í Hornafirði

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Persónulega finnst mér þessi fsp. hvorki vera knýjandi né mikilvæg, en það er aukaatriði þessa máls. Þm. hljóta að eiga rétt á að bera hér fram þær fsp. sem þeir óska svara við, og það er vissulega alvarlegt ef meiri hl. Alþingis tekur sér það vald áð neita því að fsp. fáist settar fram og þeim svarað. Það er mjög alvarlegt mál. — Herra forseti. Ég segi já.