16.02.1983
Neðri deild: 41. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2074 í B-deild Alþingistíðinda. (1787)
61. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um sérstakan skatt á skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Frv. þetta hefur verið afgreitt frá Ed. og kemur nú í síðari deild.
Þessi skattur var lagður á í fyrsta sinn á árinu 1979. Skatturinn hefur síðan verið lagður á árlega samkv. sérstökum lögum sem gilt hafa fyrir eitt ár í senn. Á síðasta ári var skatturinn lagður á samkv. lögum nr. 19/1982 og er áætlað að tekjur af honum hafi orðið um 32 millj. kr. Í frv. til fjárl. fyrir 1983 var gert ráð fyrir þessari skattlagningu áframhaldandi og var frv. samþ. með þeirri till. Af þeim sökum ber að sjálfsögðu brýna nauðsyn til að frv. þetta verði afgreitt.
Ég sé ekki ástæðu, herra forseti, til að fjölyrða um frv. þetta, sem er shlj. frv. um sama efni sem flutt hafa verið og samþykkt á undanförnum þingum, en leyfi mér að leggja til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til hv. fjh.- og viðskn.