03.11.1982
Neðri deild: 7. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í B-deild Alþingistíðinda. (213)

Um þingsköp

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Það er að vísu svo, að dagskrá hv. Nd. er æðilöng og við höfum sem mest að vinna. Það var í dag fundur forseta með þingflokksformönnum, þar sem ræddir voru möguleikar á að hraða málum til nefnda. Sú málaleitan okkar verður væntanlega rædd á þingflokksfundum í dag og eftir það getum við kannske ráðið í hvernig málum muni þoka fram. En þar til treysti ég mér ekki til þess sérstaklega að segja til um hvenær til að mynda umgetið mál gæti komið til umr. hér.