03.03.1983
Neðri deild: 49. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2452 í B-deild Alþingistíðinda. (2238)
14. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Garðar Sigurðsson:
Herra forseti. Að mínum dómi er þetta mál vitlaust í flestöllum atriðum sem hægt er að gera vitleysur í. Að mínum dómi er röng aðferð að veita skattafslátt, því hann nýtist ekki fátæku fólki, sem þarf að borga dýrar tannviðgerðir, ef þetta fólk borgar ekki tekjuskatt hvort sem er. Það eru þeir sem fyrst og fremst þurfa á aðstoð að halda. Fyrir utan það er málið auðvitað sett í vitlausa nefnd og allt þar fram eftir götunum. Ég segi nei.