03.03.1983
Neðri deild: 50. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2463 í B-deild Alþingistíðinda. (2271)

111. mál, Tónskáldasjóður Íslands

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Ég vil geta þess vegna þeirrar skrifl. brtt., sem ég kynnti óvart áðan, sem er í því fólgin að ártali er breytt úr 1983 í 1984, að 1. flm. upplýsir mig um að ártalið sé prentvilla, þannig að þarna eigi að standa 1984. Leyfir forseti sér að leiðrétta þessa prentvillu án frekari umsvifa, og skoðast það samþykkt ef enginn mælir því í gegn, ella mundi hann taka brtt. til meðferðar.