04.03.1983
Efri deild: 56. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2495 í B-deild Alþingistíðinda. (2299)
211. mál, lán vegna björgunar skipsins Het Wapen
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Það er eðlilegt að menn óski eftir því að fjh.- og viðskn. þessarar deildar fjalli um þetta frv. með eðlilegum hætti. Ég get lofað þeim tveimur hæstv. ráðherrum, sem þess hafa óskað, að það verði gert. Hins vegar finnst mér nokkuð sérkennilegt að hæstv. utanrrh. Ólafur Jóhannesson og hæstv. viðskrh. Tómas Árnason skuli gera því skóna hér í ræðum að fjh.- og viðskn. Nd. hafi ekki kannað þetta mál nægilega vel og dómur n. um málið sé byggður á því að hún hafi ekki fjallað um það á gaumgæfilegan hátt.
Fjh.- og viðskn. Ed. hefur haft gott samband við fjh.og viðskn. Nd. í mörgum málum. Reynsla mín sem formanns í fjh.- og viðskn. Ed. er þvert á móti sú, að formaður fjh.- og viðskn. Nd., hv. þm. Halldór Ásgrímsson, vandar mjög vinnubrögð sín við meðferð mála, einkum og sér í lagi ef í hlut á ákvörðun sem skuldbindur opinber yfirvöld á fjárhagsgrundvelli. Ég veit að ég þarf ekki að lýsa því hér fyrir hv. deild að í fjh.- og viðskn. er hópur manna sem kappkostar að skoða mál vel. Ég get ekki séð að það sé hægt að beina því til okkar, fjh.- og viðskn. Ed., að ástæðan fyrir því að við eigum að fjalla sérstaklega um málið sé sú, að vinnubrögðin hafi ekki verið nægilega vönduð í hv. Nd. Ég get ekki tekið við málinu á þeim grundvelli. Einkum og sér í lagi væri það ósanngjarnt í ljósi góðrar samvinnu minnar við hv. formann fjh.- og viðskn. Nd. að ég tæki við málinu á þeim forsendum.
Hv. þm. Halldór Ásgrímsson er auk þess formaður bankaráðs Seðlabankans, sem ber m. a. skylda til að tryggja það að erlendar lántökur séu ekki úr hófi. Það
er líka skemmtileg söguleg staðreynd að fyrirrennarar hans tveir í starfi endurskoðanda Sambands ísl. samvinnufélaga voru þeir tveir hæstv. ráðherrar, sem töluðu hér áðan, fyrst Ólafur Jóhannesson og síðan hæstv. ráðh. Tómas Árnason. (Utanrrh.: Ætli sú endurskoðun sé ekki í lagi, bæði nú og fyrr?) Jú, það var nú einmitt það sem ég ætlaði að víkja að, að störf þeirra allra þriggja að þeim málum reyndust vel í gegnum tíðina. Það þekki ég af vettvangi samvinnuhreyfingarinnar a. m. k. og þarf í sjálfu sér ekki að fara um það fleiri orðum. Ég skal verða við þeirri ósk að skoða þetta mál. En ég vildi strax taka það hér fram, að ég vil hins vegar ekki taka við málinu beinlínis á þeim forsendum sem óskin var borin fram. Við skulum hins vegar skoða þetta á sjálfstæðan hátt.
Vegna þess að hæstv. viðskrh. vék hér að lánsfjáráætlun og rökstuddi mál sitt sérstaklega með tilvísun til hennar vil ég upplýsa það, að í meðferð fjh.- og viðskn. þessarar deildar og Nd. á frv. til lánsfjárlaga, sem nú hefur staðið hér í nokkra daga, hefur komið fram að sá liður sem Seðlabankinn telur að þurfi helst að hækka á lánsfjáráætluninni er sá liður sem heyrir beint undir hæstv. viðskrh., þær lántökur sem fara í gegnum langlánanefnd. Og vegna þess að hæstv. viðskrh. lýsti réttilega áhyggjum sínum af því að erlendar lántökur yrðu auknar í meðferð þingsins, frá því frv. sem hér hefur verið lagt fram, vil ég nota þetta tækifæri til að koma þeirri ósk á framfæri við hann, að hann noti nú helgina til þess að tryggja að frá viðskrn. komi strax á mánudaginn álitsgerð á þann veg að ekki þurfi að hækka frv. til lánsfjárlaga, hvað snertir þann lið sem undir langlánanefnd og viðskrn. heyrir, jafnmikið og Seðlabankinn hefur lagt til.