04.03.1983
Efri deild: 56. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2502 í B-deild Alþingistíðinda. (2316)
215. mál, skipamælingar
Frsm. (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Samgn. hefur haft þetta mál til meðferðar. Hér er nánast um að ræða smávægilega tæknilega breytingu til þess að unnt sé að uppfylla skilyrði í alþjóðasamningum sem við erum aðilar að.
Nefndin mælir með samþykkt frv.