04.03.1983
Neðri deild: 51. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2525 í B-deild Alþingistíðinda. (2343)

227. mál, happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna

Frsm. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv. fjallar um það að framlengja heimild Dvalarheimilis aldraðra sjómanna til að starfrækja happdrætti. Heimildin á að gilda til ársloka 1994.

Nefndin hefur fjallað um efni frv. og mælir einróma með því að það verði samþykkt.