08.11.1982
Efri deild: 8. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 433 í B-deild Alþingistíðinda. (236)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Helgi Seljan):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 5. nóv. 1982. Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Norðurlandskjördæmi eystra, Soffía Guðmundsdóttir tónlistarkennari á Akureyri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Stefán Jónsson,

4. þm. Norðurl. e.“

Soffía Guðmundsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og þarf því ekki að fara fram rannsókn á kjörbréfi hennar. Býð ég hana velkomna til starfa.