08.11.1982
Neðri deild: 8. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 433 í B-deild Alþingistíðinda. (237)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 4. nóvember 1982. Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum mun ég ekki geta sótt þingfundi um sinn. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska eftir því að 1. varamaður Alþb. í Norðurlandskjördæmi vestra, Hannes Baldvinsson framkvæmdastjóri á Siglufirði. taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Ragnar Arnalds,

4. þm. Norðurl. v.“

Þar sem Hannes Baldvinsson hefur átt sæti á Alþingi áður á þessu kjörtímabili þarfnast kjörbréf hans ekki rannsóknar. Býð ég hann velkominn til starfa.