08.03.1983
Efri deild: 60. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2659 í B-deild Alþingistíðinda. (2484)
226. mál, flugstöð á Keflavíkurflugvelli
Forseti (Helgi Seljan):
Vegna orða hv. 11. þm. Reykv. vil ég taka fram að það var verk forseta að bæta þessu máli á dagskrá. Fyrir einhvern misgáning hafði þetta mál ekki veríð sett á hina prentuðu dagskrá, trúlega vegna þess að um það var talað í gær að jafnvel yrði bara um atkvgr. að ræða í báðum deildum á þessum fundum. En mér fannst skylt að taka málið á dagskrá þessa fundar og lét þar af leiðandi bæta því inn á dagskrána. Ég hef hins vegar alltaf orðið við beiðnum þm. um að fresta umr. um mál, en vænti þess þá um leið að þessi frestun nú verði ekki til þess að tefja það mjög að málið komist til nefndar. Svo illa vildi til að á fundinum í gær hafði þetta dagskrármál fallið niður einnig. Ég tek það fram að ég hafði þá sérstaklega óskað eftir því á dagskrána. Ég verð að biðja hv. flm. velvirðingar á því hvernig þar tókst til. Engu að síður hlýt ég að verða við tilmælum um frestun eins og ég hef alltaf gert hér í hv. deild en vænti þess þá um leið að það verði ekki til þess að málinu seinki um of til n.
Ég vænti þess að enginn hafi neitt við það að athuga fremur venju að umr. um dagskrármál sé frestað. Ég vænti þess fastlega að þær n. þingsins sem eru með mál sem nokkurt samkomulag er um eða er knýjandi að ná úr nefndum taki þau mál til meðferðar og vinni að þeim eftir því sem tími gefst til. Ég mun fresta þessari umr. til næsta fundar ef enginn hreyfir sérstökum andmælum. Málið er þar með tekið út af dagskrá. En ég beini þeim tilmælum til Ed.-manna að þeir verði á verði, ekki aðeins gagnvart sínum nefndarstörfum um málin heldur einnig gagnvart því að e. t. v. kynni að verða fundur í þessari hv. deild, ef Nd. skilar málum fljótt og vel frá sér, sem mér þykir að vísu í hæsta máta ósennilegt eins og sakir standa. En fundinum er nú slitið.