08.03.1983
Neðri deild: 55. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2692 í B-deild Alþingistíðinda. (2550)
Um þingsköp
Forseti (Garðar Sigurðsson):
Ég sé enga ástæðu til þess að menn geti ekki komið hér í kvöld og rætt málin áfram. Það er einkennilegt að menn kvarta undan miklu vinnuálagi þó að þeir sitji hér í örfáar klukkustundir þegar þjóðin öll er vön að vinna myrkranna á milli. Hv. alþm. eru ekkert of góðir til að gera það einnig, þegar þannig stendur á.