09.11.1982
Sameinað þing: 14. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 468 í B-deild Alþingistíðinda. (256)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„8. nóvember 1982.

Halldór Ásgrímsson, 3. þm. Austurl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jón Kristjánsson félagsmálafulltrúi, Egilsstöðum, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti,

hér með tilkynnt.

Sverrir Hermannsson, forseti Nd.

Hér með fylgir skeyti frá Guðmundi Gíslasyni, 1. varamanni Framsfl. í Austurlandskjördæmi:

„Vegna anna get ég ekki tekið sæti á Alþingi í fjarveru Halldórs Ásgrímssonar.

Guðmundur Gíslason.“

Jón Kristjánsson hefur áður átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa.