09.03.1983
Efri deild: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2747 í B-deild Alþingistíðinda. (2594)

130. mál, málefni fatlaðra

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Hv. félmn. hefur nú ekki haft aðstöðu til þess að ræða tilmæli hæstv. félmrh. á fundi. En ég hygg að mér sé óhætt að lýsa því samt hér yfir með samþykki allra viðstaddra nm. í hv. félmn. að við verðum að sjálfsögðu við ósk ráðh. í þessu efni. Er brtt. þar með tekin til baka.