09.11.1982
Sameinað þing: 14. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í B-deild Alþingistíðinda. (261)

58. mál, birgðir afurða

Fyrirspyrjandi (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. landbrh. fyrir greið svör við þessum fsp. Ég sætti mig mjög vel við að fá frekari sundurliðun skriflega, því að mér er skiljanlegt að það er tímans vegna ekki hægt að lesa upp allar þessar tölur. Þá verður að ráðast hvort það eru fleiri þm. sem óska eftir að fá tölurnar, en þá finnst mér sjálfsagt einnig að verða við því.

Ég endurtek þakkir mínar fyrir greið svör við þessum fsp.