09.03.1983
Neðri deild: 57. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2809 í B-deild Alþingistíðinda. (2727)
30. mál, heilbrigðisþjónusta
Frsm. (Guðrún Helgadóttir):
Herra forseti. Örfá orð áður en ég skil við þetta frv., sem hér liggur fyrir, og þá einkum vegna ræðu sem hv. þm. Alexander Stefánsson flutti í dag.
Það hlýtur að vekja nokkra undrun þegar hv. þm. talar um að nefndin hefði átt að gefa sér meiri tíma til að kynna sér þetta mál. Þm. veit nákvæmlega jafn vel og allir aðrir hér inni að þetta frv. hefur legið í nefnd hv. Ed. í allan vetur. Allir þm. hafa haft frv. á borðinu hjá sér og enginn þm. getur afsakað sig með því að hann þekki það ekki.
Ég vil upplýsa hv. þm. Alexander Stefánsson um það, að það er ekki neitt undrunarefni þó að mál gangi nokkuð greiðlega í heilbr.- og trn. Nd. Það vill svo til að í þeirri nefnd sitja tveir fyrrv. heilbrrh. og við skyldum ætla að þeir væru nokkuð vel að sér um þau mál sem n. fjallar um. Í n. situr einnig hv. þm. Pétur Sigurðsson, sem mjög hefur komið við sögu sjúkrastofnana í landinu, og ég hygg að hann sé ekki með öllu ófróður um þessa hluti. Sjálf hef ég, formaður n., unnið í þessum málaflokki árum saman og tel mig þar af leiðandi í allri auðmýkt mega halda því fram að mér séu þessi mál nokkuð kunnug. Fimmti nm. er einn af höfundum þessa frv. og flokksbróðir hv. þm. Alexanders Stefánssonar, hv. þm. Jóhann Einvarðsson, og ég hygg að hann þekki gjörla innihald þessa frv. Þá eru eftir tveir hv. þm. sem ég hygg að hafi þó sannarlega, ef þeir vinna eins og venjulega, kynnt sér nokkuð þetta mál. En það skal játað að hæstv. ráðh. Pálmi Jónsson hefur lítið setið fundi n. um málið. — En ég held að n. hafi svo sannarlega ekki verið að fjalla um þetta mál af neinu þekkingarleysi, og þetta hlýt ég að taka fram hér. Þess utan hafði, eins og hv. þm. Alexander Stefánsson mætavel veit, heilbr.- og trn. Ed. farið nokkuð vel ofan í málið, enda komið með skynsamlegar brtt. að okkar dómi.
Ég vil líka segja um þá ræðu, sem hv. þm. Alexander Stefánsson flutti hér í dag, að mér er það nokkuð undrunarefni hvers vegna hann fór að tala um það, sem við erum auðvitað öll sammála um, að æskilegast væri að heilsugæslulæknar hefðu mánaðarlaun eins og aðrir opinberir starfsmenn. Ég get ekki verið honum meira sammála um nokkurn hlut. En ætli hv. þm. Alexander Stefánsson viti ekki jafnvel og við öll að hér er um að ræða samningamál, sem Alþingi Íslendinga setur ekki lög um eins og ekkert sé. Það væri ákaflega ánægjulegt ef þessi breyting yrði og ég held að fjölmargir þm. mundu verða sammála um það. En ég held að svona ræða geti ekki þjónað nokkrum einasta tilgangi nema ef vera skyldi til þess að gleðja einhvern þegar líður að kosningum.
Þriðja atriðið, sem ég ætlaði að minnast á hér, er einmitt það atriði, sem hæstv. heilbrrh. minntist á áðan, sem er 8. gr. frv., liður 17.4., sem virðist fara mjög fyrir brjóst ýmissa, ekki síst Hjúkrunarfræðingafélagsins, en það varðar heimild til að greiða sjúkraliða þegar svo stendur á að ekki fæst hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir. Hv. þm. Ólafur G. Einarsson kvaddi sér hljóðs hér í dag og lýsti vilja sínum til þess að fella þetta ákvæði niður. Ég tók undir það. Mér er það satt að segja að meinalausu. Persónulega finnst mér of mikið úr þessu vandamáli gert og ég tel enga ástæðu til þess að þetta mál geti verið á nokkurn hátt hættulegt hjúkrunarfræðingastéttinni, en til þess að miðla málum, og ég held að þetta skipti ekki nokkru máli, væri ég tilbúin að ræða það við Ólaf G. Einarsson hvort við bærum ekki fram till. um það milli 2. og 3. umr. Ef við gætum gert það nú hér í 2. umr. væri ég tilbúin að skrifa upp á að fella þetta ákvæði niður.
Annað held ég að ekki þurfi að taka fram hér. Ég vil enn ítreka að hv. heilbr.- og trn. vann vel að þessu máli og fyrir það er ég þakklát. Ég held að það væri mjög æskilegt að hér yrðu ekki lengdar umr. að óþörfu. Ég held að það sé mikilvægt að þetta mál nái fram að ganga og ég vil skora á hv. deild að vinna að því.