09.11.1982
Sameinað þing: 15. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 496 í B-deild Alþingistíðinda. (280)
17. mál, verktakastarfsemi við Keflavíkurflugvöll
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Ég spurði hér áðan hvaða mál væri á dagskrá þar sem ég hafði lesið þá dagskrá sem hér lá prentuð frammi og hvergi var minnst á Tyrkland. En nú má það vel vera að þeir sem hafa „permanent“ og standa í því að vera í lagningu að staðaldri noti aðra dagskrá en hinir hér í þinginu og ekkert við því að segja. Það er út af fyrir sig þeirra mál og við verðum náttúrlega að una því að þeir séu afbrigðilegir á fleiri sviðum en þessu eina.
En erindið var einfaldlega að koma því á framfæri, að þó að við framsóknarmenn, kjörnir fulltrúar á þinginu hér, teldum okkur geta haft áhrif á ýmislegt til góðs ráðum við því miður ekki hvernig ástandið er í Tyrklandi. Við erum frekar friðarsinnar og seinir til að fara í stríð og þess vegna hefur engin tillaga komið fram í okkar herbúðum um að senda herlið til að leysa þetta mál En e.t.v. hefur friðarpostulinn, hv. 11. þm. Reykv., hugleitt herútboð. Það kemur vel til greina að athuga hvort maður yrði honum úti um einhverja liðveislu, gamla haglabyssu eða eitthvað því um líkt að láni, ef hann þyrfti að fara í stríð þarna til Tyrklands.
En sannleikurinn er sá, að þegar hv. 11. þm. Reykv. tekur sig til annað slagið og fárast yfir stjórnarfyrirkomulagi í hinum ýmsu löndum hefur hann þá tilhneigingu að standa þannig að málflutningi að lýðræðissinnar á Íslandi séu ábyrgir fyrir öllum einræðisstjórnum hvar sem þær eru í heiminum, þeir beri ábyrgð á einræðisstjórnum. Og hvers vegna vill hann haga sinum málflutningi á þennan veg? Jú, ástæðan er sú, að vegna pólitískra skoðana sinna getur hann ekki svarið það af sér að hann á stjórnmálalega samstöðu með þeim ógnaröflum sem kúga Pólland. (Gripið fram í: Þú heldur þessum mönnum inni í ríkisstj.) Held ég þeim? (Gripið fram í.) Það er ekki hægt að halda þeim, Svavar minn, hæstv. ráðh. Það eru þekki úr Íslandssögunni viðskipti Sæmundar fróða og Kölska. Sæmundur notaði hann stundum þó hann hefði ekki miklar mætur á honum. (Gripið fram í.)