10.03.1983
Sameinað þing: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2856 í B-deild Alþingistíðinda. (2830)
Um þingsköp
Ólafur G. Einarsson:
Herra forseti. Ég fagna yfirlýsingu hæstv. forsrh. um að líta megi svo á, að kjördagur verði 23. apríl. Það er líka ástæða til þess að fagna því, að við sitjum hér ekki undir neinum úrslitakostum um það hvenær þingstörfum skuli lokið. Mér hefur satt að segja stundum fundist á fundum með forsetum þingsins núna að undanförnu að það væri nánast ákvörðun um að ljúka hér á morgun.
Ég held að það sé ennþá tími til að ljúka mikilvægum málum án þess að þurfi að reikna með að kjördegi verði frestað fram yfir 23. apríl. En það eru fleiri mál sem þarf að afgreiða hér í þinginu, a.m.k. að dómi okkar stjórnarandstæðinga, en þau stjfrv. og þáltill. sem hæstv. forsrh. nefndi. Ég get talið upp hér aðeins þrjú, sem eftir er að ræða í þinginu og við vildum gjarnan fá afgreiðslu á. Það er í fyrsta lagi skipan álviðræðunefndar, það er í öðru lagi flugstöðvarmálið svonefnda og það er í þriðja lagi tillaga um samkomudag hins nýja þings. Þetta viljum við allt fá rætt, og ég fæ ekki séð að það geti gengið, jafnvel þótt við hefðum laugardaginn til stefnu, að við lykjum þessum málum fyrir helgi.
En sem sagt, tími virðist ennþá fyrir hendi til að halda áfram þingstörfum, e.t.v. fram í miðja næstu viku, án þess að verulega þurfi að stytta fresti, framboðsfresti og annað. Það hafa menn í hendi sér að gera. Svo má auðvitað fara þá leið, sem hv. þm. Kjartan Jóhannsson hefur hér nefnt sérstaklega, að tilkynning um kjördag og þingrof verði gefin út, en þingstörf haldi áfram. Þessir möguleikar eru enn fyrir hendi.