10.03.1983
Efri deild: 66. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2881 í B-deild Alþingistíðinda. (2858)

206. mál, stjórnarskipunarlög

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Þetta frv. felur í sér áfanga í átt að leiðréttingu þess misvægis sem hefur verið í vægi atkv. eftir búsetu hér í landinu. Þessi áfangi er vissulega mikilvægur þótt hann fell ekki í sér þær æskilegustu breytingar sem betur hefðu samrýmst búseturétti hér í landinu. En vegna þess að ég tel þennan áfanga mjög mikilvægt skref segi ég já.