10.03.1983
Efri deild: 66. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2884 í B-deild Alþingistíðinda. (2878)
201. mál, vegalög
Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Frv. þetta var flutt á 103. löggjafarþingi, en varð þá ekki útrætt og er nú flutt í því formi sem það er í eftir 2. umr. í hv. Nd. Þar var gerð sú breyting, að í stað orðanna „orlofsheimili í eigu stéttarfélaga, launþega eða starfsmannafélaga“ komi: orlofsheimili í eigu stéttarfélaga, launþega á svæðum sem sérstaklega eru skipulögð fyrir orlofsstarfsemi.
Þetta mál var upphaflega samkomulagsmál í svonefndum félagsmálapakka. Þá samdist um að undanskilin vegaskatti yrðu, auk þess sem nú er í 24. gr. laganna, sem eru kirkjur, skólahús, þinghús, félagsheimili og vitar, einnig orlofsheimili í eigu stéttarfélaga.
Þetta mál var lagt fram í Nd. og hefur hlotið afgreiðslu þar með þeirri breytingu að ekki þótti fært að fella eingöngu niður vegaskatt af orlofsheimilum í eigu stéttarfélaga launþega á svæðum, eins og það var orðað, heldur yrði þá nauðsynlegt að fella niður vegaskatt af sumarbústöðum almennt. Deildin taldi m.ö.o. ekki kleift að mismuna á milli sumarbústaða í eigu einstaklinga annars vegar og stéttarfélaga hins vegar. Ég skil þetta sjónarmið mætavel og hef engar aths. við þessa breytingu að gera.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta lengra mál. Eins og ég sagði í upphafi hefur þetta mál áður legið fyrir hv. Nd. Vil ég því gera að till. minni að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. samgn.