11.03.1983
Neðri deild: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2952 í B-deild Alþingistíðinda. (2999)

163. mál, verðlag

Landbrh. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Ég er hlynntur því í meginatriðum að breyta verðlagslöggjöf í þá átt sem hér er um rætt, en tel réttara að það sé gert í tengslum við heildarendurskoðun löggjafarinnar, en ekki að eitt atriði sé tekið út úr. Ég segi nei.