10.10.1982
Sameinað þing: 1. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 4 í B-deild Alþingistíðinda. (3)
Minning Kristján Eldjárns fyrrv. forseta Íslands
Aldursforseti (Gunnar Thoroddsen forsrh.):
Ég býð hv. alþingismenn og starfsfólk Alþingis velkomið til starfa.
Á þessum stað og á þessari stundu minnumst við Kristjáns Eldjárns, fyrrv. forseta Íslands, sem andaðist fyrir tæpum mánuði, 14. sept., 65 ára að aldri.
Kristján Eldjárn var fæddur 6. des. 1916 á Tjörn í Svarfaðardal. Faðir hans var Þórarinn Kristjánsson Eldjárn, bóndi þar, kennari og hreppstjóri. Móðir Kristjáns var Sigrún Sigurhjartardóttir húsfreyja á Tjörn.
Hann fór ungur til mennta, brautskráðist frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1936 og stundaði nám í fornleifafræði við Kaupmannahafnarháskóla til 1~39 þegar heimsstyrjöldin rauf þann námsferil.
Næstu tvo vetur starfaði hann við kennslu í Menntaskólanum á Akureyri. Á árunum 1941–1944 stundaði hann nám við Háskóla Íslands og lauk þaðan meistaraprófi í íslenskum fræðum. Hann var síðan aðstoðarmaður í Þjóðminjasafni Íslands 1945–47 og þjóðminjavörður 1947–1968. Hinn 1. ágúst 1968 tók hann við embætti forseta Íslands og gegndi því í 12 ár, til 1. ágúst 1980. Síðustu tvö æviárin sinnti hann fræðistörfum.
Í starfi sínum sem þjóðminjavörður fór Kristján Eldjárn víða um land og kom oft fram í Útvarpi og sjónvarpi. Hann var félagslyndur og gjarnan kosinn til stjórnarstarfa í félögum. Honum var sýndur margs konar sómi fyrir embættis- og fræðistörf.
Kristján Eldjárn var gagnmenntaður maður og rækti störf sín með áhuga og elju. Hann vann að rannsókn fornleifa á námsárum sínum og löngum síðar og annaðist þjóðminjar í rúma tvo áratugi. Jafnframt ritaði hann margt um þau fræði.
Árið 1957 varði hann við Háskóla Íslands doktorsrit um kuml og haugfé úr heiðnum sið á Íslandi. Hann var hagorður, snjall í ræðu og riti og vandvirkur fræðimaður.
Rúmlega fimmtugur að aldri var hann kjörinn forseti Íslands og naut hylli þjóðarinnar í því starfi. Í hugum Íslendinga býr söknuður vegna fráfalls hans um aldur fram. Hann var sómi þjóðar sinnar og lifir sem slíkur í minningum og sögum.
Ég vil biðja þingheim að minnast hins látna fyrrv. forseta Íslands, Kristjáns Eldjárns, með því að rísa úr sætum sínum. — [Þingmenn risu úr sætum.]