11.03.1983
Sameinað þing: 64. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2975 í B-deild Alþingistíðinda. (3022)

Um þingsköp

Forseti (Steinþór Gestsson):

Ég vil taka það fram að það fer að sjálfsögðu ekkert á milli mála hvaða mál er verið að ræða. Þetta er 16. málið, 231. mál í Sþ. og ef menn skoða það þskj., þá sést hvað hér er um að ræða. Ég sé enga ástæðu til að gefa neina yfirlýsingu um þetta að öðru leyti. Það segir sig sjálft hvernig slíkt er meðhöndlað.