11.03.1983
Sameinað þing: 64. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3018 í B-deild Alþingistíðinda. (3045)

Afbrigði vegna almennra stjórnmálaumræðna

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Vegna þess ofurkapps sem hv. þm., formaður þingflokks Alþb., Ólafur Ragnar Grímsson, leggur á að þeir hæstv. ráðherrar Pálmi Jónsson og Friðjón Þórðarson fái ekki að tala í þessum umrædda sjónvarpsþætti vil ég leggja áherslu á að ég tel það á engan hátt geta skaðað málstað Alþb. að þeir tali sem allra lengst, og því segi ég já.