14.03.1983
Efri deild: 71. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3117 í B-deild Alþingistíðinda. (3118)

221. mál, lánsfjárlög 1983

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Ríkisstj. hefur markað þá stefnu sem skýrt kemur fram í grg. með lánsfjárlögum og hefur verið útskýrð hér af hæstv. fjmrh., en hún er sú, að í ár skuti erlendar skuldir ekki hækka að raungildi. Ég vil halda mig fast við þá meginstefnu og segi því nei við þessari till.