14.03.1983
Efri deild: 71. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3117 í B-deild Alþingistíðinda. (3119)

221. mál, lánsfjárlög 1983

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Eins og kom fram í framsögu minni fyrir þessari till. er sú takmörkun á erlendum lántökum sem hér er gerð tillaga um nákvæmlega sú sama og kom fram í frv. ríkisstj. um lánsfjárlög og stefnumörkun ríkisstj. í þeim efnum. Með þessari till. er þess vegna verið að framfylgja stefnumörkun ríkisstj. um takmörkun á erlendum lántökum samkv. hennar frv. Ég segi já.