14.03.1983
Sameinað þing: 65. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3138 í B-deild Alþingistíðinda. (3155)

34. mál, hafsbotnsréttindi Íslands á Reykjaneshrygg

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Um leið og ég tek undir tilmælin, sem komu fram í síðustu orðum hv. þm., formanns utanrmn., vil ég aðeins leyfa mér að þakka nefndarmönnum hv. n. fyrir þá samstöðu, sem tekist hefur hjá þeim um afgreiðslu þeirrar till. sem við ræðum hér nú. Reyndar vil ég leyfa mér að þakka einnig öðrum aðilum, sem þar komu að. Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta. Ég veit að allir hv. þm. gera sér fulla grein fyrir þýðingu þess að við stígum það skref sem stigið er með samþykkt þessarar till.