14.03.1983
Sameinað þing: 66. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3166 í B-deild Alþingistíðinda. (3194)

Almennar stjórnmálaumræður

Forseti (Jón Helgason):

Umræðan fer þannig fram, að hver þingflokkur fær til umráða hálfa klukkustund. Auk þess fá sjálfstæðismenn, sem styðja ríkisstj., 20 mínútna ræðutíma og Vilmundur Gylfason fær 15 mínútur til umráða í samræmi við 53. gr. þingskapa. Umferðir verða tvær, 15–20 mínútur í fyrri umferð og 10–15 í þeirri síðari, en sjálfstæðismenn, sem styðja ríkisstj., fá til umráða 10–15 mínútur í fyrri umferð og 5–10 mínútur í síðari umferð.

Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Sjálfstfl., sjálfstæðismenn, sem styðja ríkisstj., Framsfl., Alþfl. og Alþb. Vilmundur Gylfason talar síðastur í fyrri umferð.

Ræðumenn verða: Fyrir Sjálfstfl. Matthías Á. Mathiesen, 1. þm. Reykn., og Birgir Ísl. Gunnarsson, 6. þm. Reykv., í fyrri umferð, en Halldór Blöndal, 7. landsk. þm., og Albert Guðmundsson, 3. þm. Reykv., í síðari umferð. Af hálfu sjálfstæðismanna, sem styðja ríkisstj., talar Gunnar Thoroddsen forsrh. í fyrri umferð, en Friðjón Þórðarson dómsmrh. og Pálmi Jónsson landbrh. í þeirri síðari. Fyrir Framsfl. tala Tómas Árnason viðskrh., Jón Helgason, 3. þm. Suðurl., og Guðmundur Bjarnason, 5. þm. Norðurl. e., í fyrri umferð, en Jóhann Einvarðsson, 5. þm. Reykn., og Steingrímur Hermannsson sjútvrh. í þeirri síðari. Ræðumenn fyrir Alþfl. verða Jóhanna Sigurðardóttir, 10. landsk. þm., og Árni Gunnarsson, 6. þm. Norðurl. e., í fyrri umferð, en Eiður Guðnason, 5. þm. Vesturl., og Kjartan Jóhannsson, 2. þm. Reykn., í síðari umferð. Fyrir Alþb. tala Svavar Gestsson félmrh., Ragnar Arnalds fjmrh. og Garðar Sigurðsson, 4. þm. Suðurl., í fyrri umferð og Ólafur Ragnar Grímsson, 11. þm. Reykv., í þeirri síðari.

Hefst nú umræðan og tekur fyrstur til máls Matthías Á. Mathiesen, 1. þm. Reykn., og talar af hálfu Sjálfstfl.