11.11.1982
Sameinað þing: 16. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í B-deild Alþingistíðinda. (322)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„10. nóvember 1982.

Jóhann Einvarðsson, 5. þm. Reykn., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum erlendis í opinberum erindum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjaneskjördæmi Markús Á. Einarsson veðurfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Sverrir Hermannsson,

forseti Nd.

Markús Á. Einarsson hefur áður átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og rannsókn kjörbréfs þá farið fram. Býð ég hann velkominn til starfa.