18.11.1982
Sameinað þing: 19. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 662 í B-deild Alþingistíðinda. (436)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti Jón Helgason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„18. nóvember 1982. Árni Gunnarsson, 6. þm. Norðurl. e., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum utan til að sitja þing Sameinuðu þjóðanna mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþfl. í Norðurl. e., Jón Árm. Héðinsson deildarstjóri í Kópavogi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt samkv. ósk um að fram fari rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Alexander Stefánsson,

forseti Nd.

Eins og fram kemur í þessu bréfi þarf að fara fram rannsókn á kjörbréfi Jóns Ármanns Héðinssonar. Vil ég biðja kjörbréfanefnd að taka það til athugunar. Verður gefið fundarhlé á meðan kjörbréfanefnd lýkur störfum. — [Fundarhlé.]