22.11.1982
Efri deild: 11. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 732 í B-deild Alþingistíðinda. (478)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Helgi Seljan):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Alþingi, 22. nóv. 1982.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varaþm. Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Guðmundur Gíslason kaupfélagsstjóri á Stöðvarfirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Tómas Árnason,

1. þm. Austurl.“

Guðmundur Gíslason hefur áður átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og þarf því eigi að rannsaka kjörbréf hans. Ég býð hann velkominn til þingstarfa.