22.11.1982
Neðri deild: 11. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 733 í B-deild Alþingistíðinda. (479)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Sverrir Hermannsson):
Mér hefur borist eftirfarandi bréf:
„Reykjavík, 18. nóv. 1982.
Þar sem ég er á förum utan til að sitja þing Sameinuðu þjóðanna mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Sigurgeir Bóasson endurskoðandi í Reykjavík, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Ólafur Þ. Þórðarson,
5. þm. Vestf.“
Sigurgeir Bóasson hefur áður átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili. Kjörbréf hans þarfnast því ekki athugunar. Býð ég hann velkominn til starfa.
Mér hefur ennfremur borist svohljóðandi bréf:
„Reykjavík, 18. nóv. 1982.
Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Suðurlandskjördæmi, Baldur Óskarsson framkvæmdastjóri, Reykjavík, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Garðar Sigurðsson,
4. þm. Suðurl.“
Baldur Óskarsson hefur áður átt sæti á þessu þingi.
Þarfnast kjörbréf hans því ekki athugunar. Býð ég hann velkominn til starfa.
Þá hefur mér og borist eftirfarandi bréf:
„Reykjavík, 22. nóv. 1982.
Samkvæmt beiðni Matthíasar Bjarnasonar, 1. þm. Vestf., sem vegna veikinda getur ekki sótt fundi Alþingis, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður hans, Sigurlaug Bjarnadóttir menntaskólakennari, taki á meðan sæti hans á Alþingi.
Virðingarfyllst,
Þorv. Garðar Kristjánsson.“
Sigurlaug Bjarnadóttir hefur áður átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili. Kjörbréf hennar þarfnast því ekki athugunar. Býð ég hana velkomna til starfa.