22.11.1982
Neðri deild: 11. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 755 í B-deild Alþingistíðinda. (499)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Alexander Stefánsson):

Mér hefur borist bréf:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varam. Sjálfstfl. í Austurlandskjördæmi, Tryggvi Gunnarsson, skipstjóri á Vopnafirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Sverrir Hermannsson,

4. þm. Austurl.

Til forseta Nd.

Tryggvi Gunnarsson hefur átt sæti á Alþingi og þarf ekki að rannsaka kjörbréf hans. Býð ég hann velkominn til starfa.