24.11.1982
Efri deild: 12. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 829 í B-deild Alþingistíðinda. (531)
65. mál, verðjöfnunargjald af raforku
Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):
Herra forseti. Iðnn. Ed. hefur fjallað um það frv. sem hér um ræðir, þ.e. frv. til l. um breyt. á verðjöfnunargjaldi af raforku ásamt síðari breytingum. Eins og kunnugt er hefur verðjöfnunargjald verið innheimt í allmörg ár. Það hefur verið undanfarin ár um 19% og er tekið af sama stofni og söluskattur.
Þetta frv., sem hér er til umfjöllunar og n. hefur afgreitt, er í raun og sannleika framlenging á lögum sem gilt hafa, þ.e. á verðjöfnunargjaldinu, og er gert ráð fyrir að það sé innheimt samkv. þessu frv. til ársloka 1983. Eins og kunnugt er er fjárhagsstaða Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða ekki nægilega traust. Verðjöfnunargjaldið hefur gert það kleift meðal annarra þátta að jafna raforkuverð, þ.e. að færa taxta Rafmagnsveitna ríkisins nær þeim töxtum sem gilda hjá öðrum rafveitum í landinu. Um þessar mundir er t.d. heimilistaxti hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur líklega 20–25% hærri en hjá Rafmagnsveitum ríkisins, þannig að það hefur færst í jafnaðarátt.
Samkv. 1. gr. er jafnframt gert ráð fyrir að iðnrh. verði heimilt að fela Orkusjóði að endurgreiða Rafveitu Siglufjarðar verðjöfnunargjald af raforku sem nemi allt að þeirri upphæð sem innheimt verður af raforkusölu veitunnar. Eins og hv. alþm. er kunnugt hefur Rafveita Siglufjarðar átt í allnokkrum fjárhagsörðugleikum á undanförnum árum. Sem betur fer mun nú heldur hafa rofað til í þeim efnum. Ég hirði ekki um að tíunda hér þær ráðstafanir sem stofnað hefur verið til vegna þess arna.
Eins og ég gat um áðan hefur nefndin fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykki óbreytt.