29.11.1982
Efri deild: 13. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 866 í B-deild Alþingistíðinda. (575)
61. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Frv. það til laga um sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði, sem hér er til umr., er gamalkunnugt hér á Alþingi að ekki sé nú sagt góðkunningi alþingismanna. Það hefur verið flutt nokkur undanfarin ár og lögin hafa gilt til eins árs í senn.
Skatturinn var fyrst á lagður 1979 og hafa ekki verið gerðar breytingar á þessari sérstöku skattlagningu síðan þá. Ég sé því ekki ástæðu til að fjölyrða mikið um þessa skattlagningu, en hún nemur eins og áður 1.4% af skattstofni.
Í tekjuáætlunum með fjárlagafrv. fyrir árið 1983 er gert ráð fyrir þessari skattlagningu og þar er reiknað með að skatturinn gefi við álagningu 54.7 millj. kr., en að innheimtan muni skila 49.5 millj. kr. að meðtalinni innheimtu af eftirstöðvum fyrri ára.
Herra forseti. Þar sem svo oft áður hefur verið gerð grein fyrir þessu frv. sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða hér um það, en legg til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til hv. fjh.- og viðskn.