29.11.1982
Efri deild: 13. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 867 í B-deild Alþingistíðinda. (576)
61. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Ég get ekki tekið undir þau orð hæstv. fjmrh. að þetta sé gamall og góður kunningi þm. Ekki er það góður kunningi og ekki er það mjög gamalt, en ef eitthvað er mætti kannske helst kalla þetta gamlan draug hér í þingsölum.
Þessi skattur var fyrst lagður á árið 1979, eins og hæstv. ráðh. ræddi um, og við Alþfl.-menn áttum þá aðild að því. Þessi skattur var þá hugsaður sem liður í tímabundnum ráðstöfunum. En eins og önnur skattheimta, einkanlega hin seinni árin, hefur þetta gjald festst í sessi og er orðið fastaskattur, sem aldrei var ætlunin.
Í fyrra lögðum við þm. Alþfl. til að þessi skattur yrði þá lækkaður um helming, þ.e. að hann yrði felldur niður í tveimur áföngum, vegna þess að þessi skattur átti aldrei að standa til eilífðarnóns eins og nú er gert ráð fyrir. Till. okkar um að fella þennan skatt niður í áföngum á tveimur árum, sem hefði verið vel viðráðanlegt og vel framkvæmanlegt, var felld. Þá lýstum við því yfir að við mundum greiða atkvæði gegn þessum skatti ef hann yrði enn lagður fram á næsta þingi. Það hefur nú verið gert og ég ítreka því þá afstöðu okkar þm. Alþfl. að við nú munum greiða atkv. gegn þessari skattlagningu af þeim ástæðum sem ég hef þegar rakið.