30.11.1982
Sameinað þing: 23. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 908 í B-deild Alþingistíðinda. (614)
60. mál, rafvæðing dreifbýlis
Egill Jónsson:
Herra forseti. Einungis örfá orð og kannske aðallega vegna þess að ég þarf að leiðrétta það sem ég sagði í fyrri ræðu minni. Þar talaði ég um að það væru tveir af fjvn.-mönnum Framsfl. flm. að þessari till., en mér yfirsást því að þeir eru þrír. Allir þm. Framsfl. sem eiga sæti í fjvn. Alþingis flytja þessa till. Verð ég alveg sérstaklega að biðja þann mann afsökunar á þessu sem síðast talaði af því að ég taldi rangt ekki svo löngu áður. Ég vona satt að segja að hann verði ekki frekar en hinir heiðursmennirnir, sem reyndar eru báðir úr Ed., kenndur við sýndarmennsku í tillöguflutningi þegar að afgreiðslu fjárlaga kemur.
En það er svo um þennan hnút. Hv. síðasti ræðumaður var að tala um að það væri sérstakur hnútur á í þessu efni vegna þess að þetta væri flokkað undir félagslegar framkvæmdir. Ég hef ekki séð þá flokkun nema hjá Rafmagnsveitum ríkisins. Þær tala um þetta sem félagslegar framkvæmdir. Það er farið að kalla allt félagslegar framkvæmdir sem ekki skilar arði í því fjármálaöngþveiti sem er í þessu þjóðfélagi, og þyrfti í raun helst að afskrifa allan stofnkostnað af rekstri til þess að hér verði hægt að reka fyrirtæki. Það mætti alveg eins til sanns vegar færa að atvinnuvegirnir og þarfir þeirra í sambandi við fjármagn ættu að flokkast undir félagslegar framkvæmdir. En peningarnir eru nú eins í laginu hvort heldur sem menn tala um félagslegar framkvæmdir eða eitthvað annað í sambandi við þetta. Hér er það fyrst og fremst vilji manna og áhugi á þessu máli sem ræður.
Ég vil taka það alveg skýrt fram hér og undirstrika það út frá því sem tveir hv. ræðumenn hafa látið koma hér fram, að hér væri tekin hliðsjón af lögum um lagningu sjálfvirks síma, að málið er bara ekki svo einfalt, vegna þess að við erum að tala um framkvæmdir á næsta ári og þá í allra síðasta lagi á árinu 1984. Við erum að tala um afgreiðslu á máli sem að verulegu leyti ræðst af afgreiðslu næstu fjárlaga. Það er af þessari ástæðu sem við megum ekki drepa málinu á dreif með þáltill. Hún er þó jafnmikilvæg fyrir það og ég er jafnþakklátur flm. þessarar till. eftir sem áður og þá sérstaklega 1. flm., sem ég geri mér alveg ljóst að hefur haft forgöngu um þetta mál. Till. sem slík er búin að ná sínum árangri, ná sínu takmarki. Hún er búin að gefa sín fyrirheit. Það er alveg augljóst mál, að það liðsinni sem þessir tíu dreifbýlisþingmenn Framsfl. hafa nú heitið við fjárlagaafgreiðslu er það sem hér skiptir máli — ekki áætlun til tveggja ára heldur hvernig málið verður afgreitt við næstu fjárlagagerð. Það er þungamiðja þessa máls, eins og ég hef áður sagt.
Ég er þakklátur fyrir flutning þessarar till. og sérstaklega 1. flm. hennar. Ég fagna því, sem hann sagði hér áðan, og ég veit að það er alveg fyllilega mark á því takandi að hann er ekki að flytja mál til að vekja athygli á sjálfum sér, heldur mál sem hann hefur áhuga á að kæmist áfram. En nú reynir á hina níu við næstu fjárlagagerð og afgreiðslu.