06.12.1982
Neðri deild: 14. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í B-deild Alþingistíðinda. (697)

130. mál, málefni fatlaðra

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Ég beindi einni spurningu til félmrh., sem ég tel mikilvægt að fá svar hans við áður en málið fer til nefndar vegna þess að það skiptir töluverðu máli framhaldsins vegna hver afstaða hans er. Hún er varðandi það sem samráðsnefndin leggur til varðandi sérkennsluna, að hún falli ekki undir sjóðinn, en verði fjármögnuð á fjárl. Eins vil ég heyra afstöðu ráðh. til þess álits samráðsnefndarinnar að gildistakan verði ekki fyrr en 1. jan. 1984.