07.12.1982
Sameinað þing: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 997 í B-deild Alþingistíðinda. (730)

269. mál, verðmyndunarkerfi landbúnaðarins og endurskoðun útflutningsbótakerfisins

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að svara neinum af þeim spurningum sem hv. 4. þm. Reykv. beindi til mín. En hann komst þannig að orði að ég vildi gjarnan fá nánari skýringu á því. Hann sagði: Þingmenn eins og Albert Guðmundsson, þm. eins og þessi og þm. eins og hinn. Ég vil gjarnan fá skýringu. Hvað meinar maðurinn?