21.10.1982
Sameinað þing: 5. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í B-deild Alþingistíðinda. (82)
18. mál, stóriðnaður á Norðurlandi
Flm. (Lárus Jónsson):
Herra forseti. Aðeins örfá orð. Ég sé ekki ástæðu til að fara hér út í almennar umræður um ýmislegt, sem hér kom fram í máli hv. þm., en ég sé ástæðu til að þakka mjög jákvæðar undirtektir við þessa till., sem hér hafa komið fram, og sérstaklega vil ég þakka hæstv. ráðh. hans málflutning við þessar umræður. Hann sagði að það væri unnið að því að framkvæma öll meginatriði sem fram kæmu í till. á vegum rn., staðarvalsnefndar og fleiri aðila. Staðarvalsnefnd var skipuð haustið 1980 og ef ég man rétt kom þessi till. fram fyrst þá á Alþingi og fékk svolítið öðruvísi umfjöllun þá en nú. En ég hef enga löngun til þess að rifja það upp, heldur þakka þær undirtektir sem hér hafa komið fram.
Ég lít svo til, að það sé mjög gott að það sé unnið hratt að málum, og ef unnið er að því að framkvæma þessa þáltill. meðan hún er í meðförum Alþingis ætti það að flýta fyrir því, að þetta mál í heild kæmist í höfn, atvinnumálin á Norðurlandi eystra, þar með talið að kannaðir séu kostir þess að koma þar upp orkufrekum iðnaði. Það er vel, ef svo verður, að þessum málum er öllum þokað fram um leið og þessi till. er hér til umræðu í þriðja sinn á Alþingi.
Herra forseti. Ég gleymdi víst að gera tillögu um nefnd og ég geri það þá að tillögu minni nú, að till. verði vísað til hv. atvmn.