14.12.1982
Sameinað þing: 29. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1125 í B-deild Alþingistíðinda. (845)

Um þingsköp

Forseti (Jón Helgason):

Vegna fyrirspurnar hv. 3. þm. Norðurl. e. vil ég benda á það, að í þingsköpum eru engin ákvæði sem veita forseta vald til að stöðva framgang fjárlagafrv. eða koma í veg fyrir að hv. alþingismönnum gefist kostur á að taka afstöðu til þess, þegar fjvn. hefur skilað nál. og brtt. til 2. umr.