15.12.1982
Sameinað þing: 30. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1168 í B-deild Alþingistíðinda. (868)

1. mál, fjárlög 1983

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins staðfesta það fyrir hönd okkar Alþfl., sem fram kom hjá formanni þingflokks Sjálfstfl., sem talaði hér áðan. Við munum sjá til þess að útvega mótatkv. í þeim atkvgr. sem við ella hefðum setið hjá um til þess að tryggja það, að afgreiðsla málsins geti gengið fyrir sig án þess að þurfi að framkvæma nafnakall í öllum þeim atriðum, sem ella þyrfti að viðhafa nafnakall.