15.12.1982
Sameinað þing: 30. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1171 í B-deild Alþingistíðinda. (874)

1. mál, fjárlög 1983

Magnús H. Magnússon:

Herra forseti. Hæstv. félmrh. sagði að tvöfalda ætti framlög til Byggingarsjóðs ríkisins frá því sem nú er. Þó svo væri, þá verða tekjustofnar Byggingarsjóðs ríkisins innan við helmingur af því sem markaðir tekjustofnar gerðu ráð fyrir. Alþfl. hefur flutt sams konar frumvörp á undanförnum þingum og jafnhliða bent á lækkun útgjalda. Þessi brtt. gengur aðeins út á það eitt, að farið sé að lögum um launaskatt. Ég segi já.