15.12.1982
Efri deild: 19. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1173 í B-deild Alþingistíðinda. (884)
28. mál, málefni aldraðra
Davíð Aðalsteinsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki fremur en hæstv. ráðh. að fjalla um efnisatriði í frv. því sem hér er til umr., þ.e. um málefni aldraðra. Ég vil aðeins víkja að málsmeðferðinni. Eins og hv. alþm. er vel kunnugt er skammt til jóla. Ekki hefur verið tilkynnt hversu marga daga þingið muni starfa fyrir jólaleyfi. Ég segi þetta vegna þess að það er rétt að hluta til, sem fram kom h já hæstv. ráðh., að nefndirnar hafa starfað saman. En það var á síðari stigum málsmeðferðar í Nd.-nefndinni. Hins vegar get ég greint frá því, að það er mikill vilji fyrir hendi hjá öllum aðilum að ljúka afgreiðslu þessa máls fyrir jólahlé. Við höfum orðið ásátt um að taka málið til umfjöllunar svo fljótt sem auðið verður. Það er í sjálfu sér ekki hægt að dagsetja það hvenær við ljúkum umfjöllun um það í nefndinni, en ég staðfesti að við munum reyna að hraða því svo sem mest má verða.
Það er kannske einn ljóður á. Ekki hefur enn borist umsögn — ef til vill hefur ekki verið eftir henni leitað — frá fjárlaga- og hagsýslustofnun um hugsanlegar kostnaðarbreytingar ef þetta frv. verður samþykkt. Fleira vildi ég ekki ræða að þessu sinni.