17.12.1982
Neðri deild: 21. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1244 í B-deild Alþingistíðinda. (996)

136. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Í 4. gr. frv., sem hér er fjallað um, er getið um Reykjavík og nokkur sveitarfélög í nágrenni Reykjavíkur. Þar sem í þessum sveitarfélögum sitja nú sveitarstjórnir sem ég ber fullt traust til og veit að munu ekki misnota ákvæði þessara laga segi ég nei.