06.12.1983
Sameinað þing: 28. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1378 í B-deild Alþingistíðinda. (1203)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 6. des. 1983.

Þorv. Garðar Kristjánsson, f.h. þingflokks sjálfstæðismanna, hefur í dag ritað mér á þessa leið:

Þar sem Geir Hallgrímsson utanrrh., 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavík, er á förum til útlanda í opinberum erindum er þess óskað samkvæmt beiðni hans og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að Guðmundur H. Garðarsson viðskiptafræðingur, 2. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavík, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd.

Guðmundur H. Garðarsson hefur áður tekið sæti á þessu þingi og býð ég hann velkominn til starfa.