06.12.1983
Sameinað þing: 28. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1389 í B-deild Alþingistíðinda. (1223)
420. mál, efling kalrannsókna
Stefán Benediktsson:
Herra forseti. Ég vil bera það af mér að það sé einhver árátta hjá mér að tala illa um landbúnað. Þó að ég hafi að einhverju leyti látið álit mitt í ljós á lögum um Framleiðsluráð landbúnaðarins og fleiri málum er ég ekki þar með að hugsa illa til landbúnaðar, heldur þvert á móti. Og ég gerði mér alls ekki grein fyrir því að ég væri að tala illa um landbúnað úr þessum stól þó að ég kenndi hann við Framsfl.