06.12.1983
Sameinað þing: 29. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1434 í B-deild Alþingistíðinda. (1272)
69. mál, nauðsyn afvopnunar
Páll Pétursson:
Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa langt mál um þessa till. en ég vil ekki láta þetta tækifæri hjá líða að lýsa eindregnum stuðningi mínum við málið og ég vona að þingheimur geti sameinast um að stuðla að framgangi þess. Ég vildi einungis, herra forseti, að þetta kæmi hér fram.